You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Búnaðurinn ræstur

Þráðlausa SIKUCONTROL32-tæknin sem notuð er í þessum módelum

kemur tengingu á sjálfkrafa. Af þessum sökum þarf ekki

lengur að velja rás, eins og algengt er í öðrum vörum. Tengingu

milli fjarstýringar og módels er komið á sjálfkrafa og verður hún

ekki fyrir truflunum vegna notkunar annarra SIKUCONTROL32módela

í sama herbergi eða vegna tækja sem notast við annars

konar þráðlausa tækni (s.s. þráðlaust staðarnet eða Bluetooth).

Módelið er sett í gang með eftirfarandi hætti:

1. Kveikið á módelinu. Það er gert með því að færa aflrofann

neðan á leikfanginu úr stöðunni “OFF” í stöðuna “ON”.

Ljós á módelinu blikkar og gefur þannig til kynna að kveikt sé

á því.

2. Kveikið á fjarstýringunni með því að þrýsta á rofann. Rauða

gaumljósið á fjarstýringunni blikkar. Fjarstýringin er þá tilbúin

til notkunar.

3. Nú er komið á tengingu milli módelsins og fjarstýringarinnar.

Þetta ferli getur tekið allt að fimm (5) sekúndur.

4. Tengingu milli fjarstýringar og módels hefur verið komið

á þegar fram- og afturljósin á módelinu og gaumljósið á handsendinum

loga. Stillingar fyrir módelið eru þá vistaðar

í fjarstýringunni og hægt er að nota það. Aðeins er hægt að

stýra þessu tiltekna módeli með fjarstýringunni að þessu sinni.

5. Þá má byrja að leika sér.

ATHUGIÐ: Þegar slökkt er á fjarstýringunni (með því að þrýsta

á hnappinn á fjarstýringunni) er tengingin við módelið rofin.

Stillingum fyrir módelið er þá eytt úr minni fjarstýringarinnar.

Næst þegar kveikt er á búnaðinum skal koma aftur á tengingu

samkvæmt leiðbeiningunum hér að ofan og byrja á skrefi 1.

Fjarstýringin

Aðeins er hægt að nota þetta SIKUCONTROL32-módel með

þráðlausu SIKU-fjarstýringunni sem fylgir með í þessum

umbúðum. Fjarstýringin sendir frá sér útvarpsbylgjur á tíðninni

2,4 GHz en ekki er vitað til þess að slíkt geti valdið heilsutjóni ef

notkun er með fyrirhuguðum hætti. Virkni hnappa fyrir þetta

módel er lýst á bls. 2. Rafhlöður eða hleðslurafhlöður (2 x AAA)

fyrir fjarstýringuna fylgja ekki með. Gætið að merkingunum sem

segja til um hvernig setja skal rafhlöðurnar í rafhlöðuhólfið.

Nota skal tækið á þurrum stöðum og verja það fyrir óhreinindum,

einkum ryki og raka. Ef þörf krefur skal þurrka af því með þurrum

klút. Gæta verður þess að valda ekki skammhlaupi í tengjum

fjarstýringarinnar.

Upplýsingar um rafhlöður eða hleðslurafhlöður

Aðeins má setja rafhlöður af gerðinni AAA í módelið og

fjarstýringuna. Athugið reglulega hvort rafhlöður leki. Þegar

rafhlöður eru tómar skal fjarlægja þær úr módelinu og

fjarstýringunni. Reynið ekki að hlaða venjulegar rafhlöður. Taka

skal hleðslurafhlöður úr módelinu og / eða fjarstýringunni áður

en þær eru hlaðnar. Aðeins má hlaða hleðslurafhlöður undir eftirliti

fullorðinna. Gætið þess að skaut rafhlaðanna snúi rétt þegar

þær eru settar í. Ekki má blanda saman rafhlöðum af mismunandi

gerðum eða nýjum og notuðum rafhlöðum.

Gæta verður þess að valda ekki skammhlaupi á tengjum

rafhlaða. Ekki má fleygja rafhlöðum með venjulegu heimilissorpi.

Fara skal eftir reglum um förgun á hverjum stað!

Athugið! Ef rafhlöður eru í ólagi má ekki senda þær aftur til

framleiðanda, heldur skal skila þeim til móttökustöðva

á hverjum stað.

Öryggisleiðbeiningar

Varúð! Hentar ekki fyrir börn yngri en 36 mánaða.

Köfnunarhætta vegna smáhluta sem geta farið niður í kok.

SIKU-leikfangamódelin eru framleidd samkvæmt nýjustu öryggisreglum.

Á umbúðum koma fram upplýsingar um framleiðanda og skal

því geyma þær.

Lita- og tæknibreytingar eru áskildar.

Ef einstaklingar með skerta líkamsgetu, hreyfigetu eða andlega

getu eða skort á reynslu og þekkingu eiga að leika sér með

módelið verður að tryggja að viðkomandi fái fyrst tilsögn hjá

ábyrgðarmanni.

Ef nota á hleðslurafhlöður skal tryggja að notuð séu hleðslutæki

af viðeigandi gerð. Ef hleðslutæki eru í ólagi skal taka þau

úr notkun. Fara skal eftir því sem fram kemur í notkunarleiðbeiningum

hleðslutækja.

Lesið notkunarleiðbeiningarnar áður en leikfangið er tekið

í notkun og geymið þær á vísum stað.

Made in China

for

Sieper GmbH

Schlittenbacher Str. 60

58511 Lüdenscheid

Germany

www.siku.de

Framleitt samkvæmt leyfi frá AGCO International GmbH

Tæknilýsing

Fyrirmynd

Framleiðandi Fendt

Gerð 939 dráttarvél

Afl 287 kW / 390 hö.

Strokkar 6

Slagrými 7755 cm3 Þyngd 10,83 t

Hraði

Módel

60 km/klst.

Efni Málmur með plasthlutum

Mál 180 x 95 x 112 mm

Mótorar

Rafmagn

1 drifog

1 stýrimótor

í dráttarvél: 3 x AAA-rafhlöður (1,5 V)

eða

Rafmagn

3 x AAA-hleðslurafhlöður (1,2 V)

í fjarstýringu: 2 x AAA-rafhlöður (1,5 V)

eða 2 x AAA-hleðslurafhlöður (1,2 V)

Stýring 2,4 GHz þráðlaus fjarstýring

Þyngd u.þ.b. 475 g

Hraði u.þ.b. 0,2 m/sek. (með 1,5 V rafhlöðum)

45