28.05.2013 Views

6881_Bedienungsanleitung JD - Siku

6881_Bedienungsanleitung JD - Siku

6881_Bedienungsanleitung JD - Siku

SHOW MORE
SHOW LESS

Create successful ePaper yourself

Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.

Til hamingju

með nýja og vandaða leikfangamódelið. Vinsamlegast lesið þessar

leiðbeiningar vandlega áður en byrjað er að nota módelið. Hér

á næstu síðum er að finna nauðsynlegar upplýsingar og ábendingar

um rétta meðhöndlun vörunnar.

Geymið leiðbeiningarnar á vísum stað.

Við vonum að þessi vara frá SIKU eigi eftir að veita mikla ánægju.

Sieper GmbH

Mikilvægar upplýsingar

Þegar leikfangið hefur verið tekið úr umbúðunum skal athuga

hvort það hafi orðið fyrir skemmdum við flutning. Leita skal til

söluaðila ef einhverju reynist vera ábótavant.

Lesið þessar leiðbeiningar vandlega áður en byrjað er að nota leikfangið.

Hér er að finna mikilvægar upplýsingar um öryggi notenda

sem og um notkun og umhirðu þessarar SIKUCONTROL32-vöru.

Geyma skal leiðbeiningarnar á vísum stað til síðari nota eða

vegna hugsanlegra ábyrgðarkrafna. Þessi SIKUCONTROL32-vara er

hönnuð samkvæmt nýjustu öryggisreglum og framleidd undir

stöðugu gæðaeftirliti. Niðurstöður þessa eftirlits hafa áhrif á þróunarferlið.

Af þessum sökum áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar

á tækni og hönnun í því skyni að geta ávallt boðið viðskiptavinum

okkar upp á vörur í hæsta gæðaflokki. Ef einhverju reynist

engu að síður vera ábótavant skal hafa samband við söluaðila.

Öryggisupplýsingar

Aðeins má nota módelið í fyrirhuguðum tilgangi, þ.e. sem leikfang

og á þurrum stað innandyra. Öll önnur notkun er óheimil

og getur verið hættuleg. Framleiðandi tekur ekki ábyrgð á tjóni

sem hlýst af rangri notkun.

Verjið módelið gegn vætu!

Af öryggisástæðum má ekki nota leikfangið nálægt brekkum,

tröppum, götum, lestarsporum, vatni, hitablásurum, pollum,

sandkössum o.s.frv.

Gætið þess að ekki sé byrjað að nota leikfangið fyrr en einhver

fullorðinn hefur skoðað og gangsett módelið og fjarstýringuna.

Aðeins fullorðnir mega skipta um rafhlöður.

Módelið samræmist tilskildum ákvæðum um öryggi (skv.

88/378/EBE, 2004/108/EB og 2009/48/EB) og hefur verið prófað

af TÜV-GS. Viðgerðir sem ekki eru framkvæmdar á réttan hátt og

hvers kyns breytingar (s.s. ef upprunalegir íhlutir eru fjarlægðir,

óleyfilegum íhlutum er bætt við eða gerðar eru breytingar á rafeindabúnaði

) geta skapað hættu fyrir notendur.

Notast er við útvarpsbylgjur á tíðnisviðinu 2,4 GHz til að stýra

módelinu. Ekki hefur verið sýnt fram á að útvarpsbylgjur af þessu

tagi valdi heilsutjóni ef notkun er með fyrirhuguðum hætti. Útsendingarstyrkur

þessa módels er umtalsvert undir þeim

mörkum sem lög leyfa.

Jafnvel þótt þráðlausi búnaðurinn veiti mikið öryggi gegn truflunum

er aldrei hægt að útiloka truflanir vegna umhverfisáhrifa

eða annars búnaðar sem sendir frá sér útvarpsbylgjur. Truflanir af

þessu tagi geta takmarkað drægi þráðlausa búnaðarins.

Sýna skal börnum hvernig nota á módelið á réttan hátt og fræða

þau um mögulegar hættur.

Hafa skal í huga að leikþörf og skapgerð barna getur leitt til aðstæðna

sem ekki er hægt að sjá fyrir og framleiðandi getur ekki tekið ábyrgð á.

Enda þótt nánast sé útilokað að börnum geti stafað hætta af

notkun módelsins, svo fremi sem hún er með fyrirhuguðum

hætti, skal ávallt hafa auga með börnum þegar þau leika sér með

módelið.

Við þrif og umhirðu á módelinu og fjarstýringunni skal eingöngu

nota þurra hreinsiklúta sem skilja ekki eftir sig kusk.

Gætið þess að taka módelið ekki upp frá jörðu fyrr en hjól þess

eru hætt að snúast.

44

Gætið þess að fingur, hár og víður klæðnaður fari ekki nálægt drifhjólunum

eða afturtenginu á meðan kveikt er á módelinu (aflrofinn

er á “ON”).

Til að koma í veg fyrir að hægt sé að setja módelið í gang í ógáti

skal taka rafhlöðurnar úr því að notkun lokinni. Setjið eingöngu

rafhlöður eða hleðslurafhlöður af gerðinni “AAA” í módelið og

fjarstýringuna.

Til að tryggja að módelið uppfylli öryggisviðmið til lengri tíma

skal einhver fullorðinn athuga reglulega hvort skemmdir séu sjáanlegar

á því.

Gæta skal þess að jafnvel þótt fjarstýringin sé notuð á fyrirhugaðan

hátt geta komið fram verkir í höndum, handleggjum, öxlum,

hnakka og öðrum líkamshlutum (t.d. stífleiki). Ef langvarandi eða

endurtekin einkenni líkt og óþægindi, verkir, sláttur, fiðringur, doði,

bruni eða stífleiki koma fram skal ekki líta framhjá þeim heldur leita

tafarlaust til læknis!

Módelið hentar ekki fyrir einstaklinga með skerta líkamsgetu,

hreyfigetu eða andlega getu eða fyrir einstaklinga sem skortir

reynslu og þekkingu, nema að viðkomandi fái tilsögn hjá ábyrgðarmanni.

ATHUGIÐ: Þráðlaus 2,4 GHz búnaður módelsins er ekki

samhæfur við SIKUControl-módel sem stjórnað er með

þráðlausri fjarstýringu með vörunúmerinu 6708 (vörunúmer:

6718/6719/6720/6721/6722/6723/6724/6725/6726/6727/6728/

6729/6761/6762/6763/6764/6765/6766/6768/6769/6770/6771/

6772/6773)

Áður en kveikt er á leikfanginu í fyrsta sinn:

1. Færið aflrofa módelsins í stöðuna “OFF”.

2. ATHUGIÐ: Aðeins fullorðnir mega skipta um rafhlöður!

ATHUGIÐ: Rafhlöður eða hleðslurafhlöður (3 x AAA) fyrir módelið

fylgja ekki með. Nota skal módelið á þurrum stöðum og

verja það fyrir óhreinindum – einkum ryki og raka. Ef þörf

krefur skal þurrka af því með þurrum klút. Gæta verður þess

að valda ekki skammhlaupi í tengjum módelsins.

3. Rafhlöðuhaldan er fest með skrúfu.

4. Losið um skrúfuna með viðeigandi skrúfjárni og dragið

rafhlöðuhölduna varlega úr módelinu.

5. Setjið rafhlöður af gerðinni “AAA” í rafhlöðuhölduna. Gætið að

merkingunum sem segja til um hvernig setja skal rafhlöðurnar

í hölduna.

6. Setjið rafhlöðuhölduna varlega í módelið aftur, setjið skrúfuna

í og herðið hana með viðeigandi skrúfjárni.

ATHUGIÐ: Ef notaðar eru hleðslurafhlöður (af gerðinni AAA)

minnkar hraði módelsins til muna þar sem lægri spenna er

á hleðslurafhlöðunum!

Ef notaðar eru hleðslurafhlöður er mælt með AAA-NiMHrafhlöðum

(nikkelmálmhýdríð). Gætið að þessari merkingu

þegar keyptar eru AAA-hleðslurafhlöður.

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!