You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
„Opinberir

starfsmenn

þurfa að bera

kostnað af

því að halda

óbreyttum lífeyrisréttindum

með lægri

launasetningu

en ella...“

félagslegum stöðugleika í landinu. Samkomulagið er afrakstur af

vinnu svokallaðs SALEK-hóps, þar sem eiga sæti helstu viðsemjendur

á almennum og opinberum vinnumarkaði“.

Tvö landssambönd launafólks stóðu ekki að samkomulaginu,

þ.e. Kennarasambandið og Bandalag Háskólamanna.

KÍ birti á þriðjudaginn 27. október yfirlýsingu þar sem afstaða

sambandsins var skýrð. Yfirlýsingin er svohljóðandi:

Undanfarna daga hefur svokallaður SALEK-hópur aðila

vinnumarkaðarins unnið að rammasamningi um

launaþróun á íslenskum vinnumarkaði. Kennarasamband

Íslands tekur undir og styður þau meginsjónarmið

sem þar liggja til grundvallar, þ.e. að stuðla

þurfi að meiri sátt á íslenskum vinnumarkaði með

breyttum og bættum vinnubrögðum við gerð kjarasamninga.

Einnig að auka þurfi kaupmátt með því að

tryggja efnahagslegan og félagslegan stöðugleika á

grundvelli lágrar verðbólgu, stöðugs gengis og lægra

vaxtastigs.

Árangur hefur náðst í samstarfi aðila vinnumarkaðarins

og meðal annars orðið nokkur þróun í samræðum

um ábataskipti milli sveitarfélaga og viðsemjenda

þeirra hjá Kennarasambandinu.

KÍ gerir eftirtaldar meginathugasemdir við textann

sem fyrir liggur:

Útgjöld sem kunna að falla á ríki og sveitarfélög fyrr en

ella vegna fyrirhugaðra breytinga á fyrirkomulagi lífeyrismála

verði talin með kostnaðaráhrifum kjarasamninga opinberra

starfsmanna og/eða launaskriðs þeirra. Þetta getur KÍ ekki

sætt sig við enda væru slík útgjöld ekki ætluð til þess að bæta

kjör opinberra starfsmanna heldur einungis hugsuð til að

koma í veg fyrir kjaraskerðingu þeirra vegna breytinganna.

Þau útgjöld sem um er að ræða hafa auk þess engin efri mörk

í þeim texta sem fyrir liggur, meðal annars vegna þess að enn

hefur ekki náðst niðurstaða um verðmæti bakábyrgðar lífeyrisréttinda

opinberra starfsmanna. Eins og málið er sett