Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
Fréttir nóvember 2015

Ramma samkomulag

undirritað án

aðkomu KÍ og BHM

Útfærsla á lífeyrismálum réði mestu um að KÍ skrifaði ekki undir rammasamkomulag

um breytt vinnubrögð við gerð kjarasamninga.

Þriðjudaginn 27. október síðastliðinn skrifuðu flestir aðilar

vinnumarkaðarins undir samkomulag um breytt vinnubrögð

við gerð kjarasamninga. Á vef Alþýðusambands Íslands segir að

markmið samkomulagsins sé „að tryggja varanlega aukningu

kaupmáttar á Íslandi á grundvelli lágrar verðbólgu, stöðugs

gengis krónunnar og lægri vaxta. Með samkomulaginu er lagður

grunnur að sátt á vinnumarkaði, auknu samstarfi og minni

átökum. Ennfremur er stefnt að auknum efnahagslegum og