You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Lausn á bráðavandanum snerist um að koma í veg fyrir að

forsenduákvæði kjarasamninga SA og ASÍ í febrúar komandi

yrði virkjað á grunni þess að launabreytingar annarra stétta

hefðu verið umfram viðmið í kjarasamningum ASÍ. Þar með

væru kjarasamningar á hinum almenna vinnumarkaði lausir.

Niðurstaðan var að ramma inn launahækkanir allra launamanna

til ársloka 2018.

Framan af gekk illa að ná utan um verkefnið, en unnið

var eftir grunnhugmyndum sem lagðar voru á borðið af hálfu

SA, ASÍ og ríkis. Þetta upphafsskjal varð leiðarljósið fyrir alla

vinnuna. KÍ reyndi margsinnis, ásamt BHM og BSRB, að fá því

breytt en því varð ekki haggað, að því er virðist vegna ráðandi

stöðu SA og ASÍ í samstarfinu. Af þeirri ástæðu, og ýmsum öðrum,

varð það niðurstaða forráðamanna KÍ að ekki væri rétt að

skrifa undir samkomulagið eins og það lá fyrir.

KÍ samdi yfirlýsingu sem send var á fjölmiðla, birt á heimasíðu

KÍ og er einnig að finna aftar í þessu blaði. Þetta var gert

um leið og niðurstaða SALEK hópsins var kunngjörð og rammasamkomulag

aðila undirritað. Í yfirlýsingunni er þessi ákvörðun

KÍ rökstudd.

Meginástæðan er sú að blanda á inn í verkefnið breytingum

á lífeyriskerfi opinberra starfsmanna og reikna útgjöld ríkis

og sveitarfélaga sem tengjast þeim breytingum til frádráttar

mögulegum launahækkunum til framtíðar. Önnur ástæða er sú

að viðmiðunarárið, þar sem vísitala er núllstillt, er 2013 sem er

vond tímasetning fyrir aðildarfélög KÍ, því þá var launastaða félagsmanna

afar slæm. Það var þá sem Kennarasambandið hóf þá

vegferð að lagfæra laun kennara og hafði til þess gild og góð rök.

Það var kynnt fyrir þjóðinni sem þjóðarátak í lagfæringu launa

og að gera kennarastarfið áhugavert í augum ungs fólks sem er

að velja sér ævistarf.

KÍ hefur ekki frekar en BHM sagt sig frá SALEK vinnunni

eða dregið sig út úr hópnum. Við erum þeirrar skoðunar að það

sé tilraunarinnar virði að reyna að skapa nýtt samningamódel á

Íslandi. Við hefðum viljað að SALEK hópurinn hefði haft kjark