You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Gaman að sjá glaðari

nemendur

Sigríður segir áfangann hafa gefið

góða raun. „Það sem mér finnst

skemmtilegast við þetta er hvað

þeim finnst gaman. Þetta er eini

tíminn þar sem þau beinlínis sækja

mig ef ég er ekki mætt á mínútunni

og spyrja hvort ég sé ekki að koma,“

segir Sigríður og hlær. Í dag sækjast

allir tuttugu nemendurnir á starfsbraut

Tækniskólans eftir því að sitja

áfangann hjá Sigríði, og nokkrir

þeirra hafa verið með frá upphafi.

Um er að ræða þrjá hópa sem mæta

einu sinni í viku, fjórar kennslustundir

í senn.

„Það er mjög gaman að sjá hvað

nemendur sem hafa verið hjá mér

í nokkrar annir hafa öðlast mikla

færni. Fyrst voru þeir margir hverjir

miklir klaufar og þurftu mikla

leiðsögn, en nú mæta þeir bara og

hefjast handa og vinna vel. Þetta er

ég að sjá fyrst núna því ég sá þetta ekki í upphafi, en það hefur

auðvitað gengið á ýmsu,“ segir Sigríður og brosir. „Mér finnst

þeim bara líða miklu betur, og það er mjög ánægjulegt.“

Ærið verkefni. Baldur Mikael Gunnarsson virðir fyrir sér

verkefni dagsins.

Iðnnám ekki nógu „smart“

Sigríði finnst iðnnámi ekki vera gert nægilega hátt undir höfði,

og of mikil áhersla sé lögð á að nemendur fari í almennt bóknám.

„Ég á sjálf dætur sem hafa farið í gegnum grunnskóla og

ég varð alltaf voða sár yfir því, af því að ég var að kenna hérna

í Iðnskólanum í Hafnarfirði, að það var einhvern veginn alltaf

áherslan á það að fara í menntaskóla en ekki iðnskóla. Það var