Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
laðandi starfsumhverfi fyrir stráka og það er það að þeir upplifi

að það sé pláss fyrir þá. Við höfum ekkert gagn af því að fjölga

karlmönnum ef þeir eiga bara að vera eins og hverjar aðrar

kerlingar.“

Orð til alls fyrst

Umræðan um þetta þarfa mál mun halda áfram. Til dæmis

munu Félag leikskólakennara og Félag stjórnenda leikskóla efna

til ráðstefnu um „karla í yngri barna kennslu” á Grand Hóteli

föstudaginn 13. febrúar 2016. Yfirskrift og nánari dagskrá

verða auglýst síðar, en áhugasamir eru beðnir að taka daginn

frá. Í næstu Skólavörðu verður málið einnig til umræðu, þó

með víðari skírskotun, því Kennarasambandið hefur nú tekið

saman tölur um kynjaþróun í kennarastétt auk þess sem hagfræðingur

KÍ hefur reiknað út hvernig kynjahlutfallið verður að

óbreyttu innan fárra ára. Ljóst er að eitthvað þarf að gera og að

orð eru til alls fyrst. Miðað við yfirlýsingar Dags B. Eggertssonar

á málþinginu er ástæða til að ætla að svo verði, en þegar hann

kvaddi þátttakendur í lok fundar beindi hann orðum sínum að

formanni Félags leikskólakennara, og sagði: „Ég er tilbúinn að

taka ykkur á orðinu og setjast yfir það í samvinnu við félagið að

gera aðgerðaáætlun fyrir Reykjavík og sjá hvað er hægt að finna

út úr þessu.“

skólavarðan Nóvember 2015