Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
Eygló Harðardóttir og Sigurður Sigurjónsson voru meðal frummælenda á fundinum.

leikskólakennarastarfið fyrir sig. „Ég sagði að karlar væru eitt

prósent leikskólakennara. Karlar eru reyndar 8,3% starfsfólks á

leikskólum, 135 á móti rösklega 1.600 konum í borginni. Karlar

eru svo í 19,4% stöðugilda í grunnskólum eða 485 á móti

um 1.900 konum. Í frístundastarfinu er hlutfallið hærra. Þar

er það 40% - 290 karlar á móti 470 konum. Þetta er stundum

yngri hópur og ég hef velt því fyrir mér hvort þarna sé kominn

ákveðinn markhópur. Þetta eru ungir, sprækir strákar og karlar

sem hafa áhuga á að vinna með krökkum og ef við ættum að

„targetera“ einhvern hóp þá gæti þarna verið áhugaverður markhópur,“

sagði Dagur B. Eggertsson.

Klisjurnar

Sigurður Sigurjónsson, varaformaður Félags stjórnenda leikskóla,

var einn þeirra sem ávarpaði fundinn. Hann taldi upp

nokkrar klisjur sem reglulega heyrast í umræðunni um af hverju

karlmenn velja sér ekki leikskólann sem framtíðarvinnustað.