You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Svanhildur María Ólafsdóttir, formaður Skólastjórafélags

Íslands, segir niðurstöðuna áhyggjuefni. „Það kom upp umræða

um þessi mál á ársþinginu og í framhaldi tók Jón Baldvin sig

til og lagði könnunina fyrir meðal félagsmanna. Félagið átti þar

hvergi hlut að máli,“ segir Svanhildur.

„Það breytir því ekki að niðurstöðurnar eru þessar og stjórn

og samninganefnd SÍ þurfa að fara yfir þær. Einnig munum

við skoða enn frekar hvernig hægt sé að vinna að því að bæta

starfskjör skólastjórnenda svo viðunandi sé, bæði við samningaborðið

og kannski ekki síst utan þess. Mikil vinna

hefur farið fram innan félagsins við að setja niður

kröfur og forgangs verkefni til að bæta starfskjör skólastjórnenda.

Einnig hefur verið unnið að sameiginlegum

skilningi samninganefnda SÍ og SNS á hlutverki og

starfsaðstæðum skólastjóra. Sú vinna er því miður ekki

að skila sér nema að hluta til þegar kemur að samningaviðræðum

og launahækkunum.“

Skilningsleysi á eðli starfsins

Rétt er að taka fram að könnunin var gerð á netinu

og þrátt fyrir að hún standist líklega ekki ströngustu

Svanhildur M. Ólafsdóttir, formaður

Skólastjórafélags Íslands.

kröfur um aðferðafræði og framkvæmd sem gerðar

eru til slíkra kannana gefur hún engu að síður mikilvægar

vísbendingar um líðan og afstöðu skólastjórnenda.

Auk þess sem þátttakendum gafst tækifæri á að haka við

fyrirfram skilgreinda svarmöguleika gátu þeir einnig komið á

framfæri athugasemdum og ábendingum. Margir nýttu sér þann

möguleika og í athugasemdum þeirra kemur ýmislegt áhugavert

fram. Nokkrir segjast óánægðir en í þannig stöðu að þeir geti

ekki sagt starfi sínu lausu. Aðrir telja að rangt sé að nota uppsagnir

til að knýja á um endurnýjun kjarasamnings og vilja ekki

taka þátt í slíku. Athygli vekur að margir tiltaka að svo stutt sé í

starfslok að þeir ætli að þreyja þorrann en muni hætta við fyrsta

tækifæri. Einn skólastjórnandi skrifar eftirfarandi í tengslum við

spurningu um mögulega uppsögn: „Með litlar bjargir og endalausar/óraunhæfar

kröfur er eðlilegt að menn brenni upp. Nýir