You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
skólavarðan nóvember 2015

„Álagið er úr öllu

hófi og launin léleg“

Tæplega helmingur skólastjórnenda hefur íhugað að segja upp störfum sínum

vegna álags eða lágra launa. „Grafalvarleg staða,“ segir Svanhildur María

Ólafsdóttir, formaður Skólastjórafélags Íslands.

„Skólastjórnendur eru í vonlausri stöðu og að þeim er sótt úr

öllum áttum..., t.d. frá sveitarstjórn með vísan um árangur,

vísan í ákvæði laga og reglna, frá starfsmönnum o.s.frv.

Stjórnendur standa aleinir í vonlausri stöðu. Álagið er úr

öllu hófi og launin léleg“. Þannig lýsir einn félagsmaður

Skólastjórafélags Íslands upplifun sinni af stöðu stjórnenda

í grunnskólum, í könnun sem gerð var nýlega meðal

skólastjórnenda. Í könnuninni var spurt hvort félagsmenn

Skólastjórafélagsins hefðu íhugað uppsagnir, annað hvort

vegna stöðunnar í kjaraviðræðum við Samband íslenskra