Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
Skaftáreldahraun (verndartillaga 2)

Hér er gerð tillaga um að færa út mörkin umhverfis Lakagíga og láta þau yfir allt hraunið

umhverfis, þ.e. vestur að Skaftá og að austurjaðri vestari álmu Skaftáreldahrauns, alls

stækkun um 381 km 2 . Innan svæðisins yrðu allar framkvæmdir og athafnir sem leitt geta til

röskunar vistgerðarinnar bannaðar.

Mörk: Vesturmörk fylgja Skaftá frá upptökum í Vatnajökli og suður fyrir Skælinga. Þaðan

ræður hraunjaðar Skaftáreldahrauns suður að Núpsheiði og áfram í norður að mörkum

Vatnajökulsþjóðgarðs austan Varmárdals. Austan Lakagíga ráða útbreiðslumörk breiskjuhraunavistar

að mörkum Vatnajökulsþjóðgarðs í sunnanverðum Síðujökli.

Nauðsynlegar aðgerðir: Koma þarf í veg fyrir allar framkvæmdir sem raskað geta svæðinu.

Forsendur: Innan Vatnajökulþjóðgarðs eru um 70 km 2 skilgreindir sem breiskjuhraunavist.

Með stækkun þjóðgarðsins eins og hér er gert ráð fyrir myndu um 89 km 2 breiskjuhraunavistar

bætast við náttúruverndarsvæðið.

78