You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFNUN ÍSLANDS 2008

Verndun svæða, vistgerða og tegunda. Tillögur Náttúrufræðistofnunar Íslands

vegna náttúruverndaráætlunar 2009–2013

Þjórsárver

Lagt er til að færa út mörk friðlandsins í Þjórsárverum (sbr. auglýsing nr. 507/1987 um

friðland í Þjórsárverum) þannig að það nái yfir rústamýrar og votlendi á svæðinu. Friðlandið

tilheyrir Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Ásahreppi og stærð þess eftir stækkun yrði um 774

km 2 . Votlendi Þjórsárvera eru þau stærstu og gróðurríkustu á hálendi Íslands og teljast

mikilvæg á heimsvísu (sbr. Ramsarsamningurinn). Alþjóða fuglaverndarsamtökin BirdLife

International hafa skilgreint verin sem eitt af mikilvægum fuglasvæðum Evrópu.

Mörk: Lína dregin úr Eiríksnípu sunnan Hofsjökuls í nafnlaust sker í 1.246 m hæð í

Hofsjökli, norður af Arnarfelli hinu mikla. Þaðan austur í Háölduhraun, þá í Skrokköldu,

síðan í punkt vestan við Þveröldu og að lokum í punkt við Kisugljúfur.

Nauðsynlegar aðgerðir: Mikilvægt er að styrkja núgildandi friðlýsingarskilmála og leggja

bann við öllum framkvæmdum, m.a. breytingum á vatnsbúskap, sem raskað geta svæðinu.

Ekkert er því til fyrirstöðu að beit búfénaðar verði áfram í svipaðri mynd og nú er.

Forsendur: Innan friðlands í Þjórsárverum eru 10,4 km 2 skilgreindir sem rústamýravist.

Með stækkun þess sbr. tillögu Náttúrufræðistofnunar Íslands bætast við 2,7 km 2 af

vistgerðinni, þar af eru um 1,3 km 2 norðaustan núverandi friðlands, 0,7 km 2 sunnan þess og

0,7 km 2 austan Kvíslavatna. Nái tillagan fram að ganga nær friðlandið yfir allar rústamýrar

sem skilgreindar hafa verið á svæðinu. Mörkin eru einnig valin með það í huga að uppfylla

ákvæði stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar um verndun hins sérstæða votlendis veranna.

69