Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
6. viðauki. Vistgerðir á hálendinu

Náttúrufræðistofnun leggur til að friðlýstar verði tvær vistgerðir á hálendinu: Rústamýravist

og breiskjuhraunavist. Vistgerðunum og útbreiðslu þeirra er lýst og gerð er grein fyrir

markmiðum friðlýsinganna, forsendum fyrir verndun og nauðsynlegum aðgerðum. Til að

tryggja verndun vistgerðanna er lagt til að friðlýsa tiltekin svæði og er afmörkun þeirra sýnd

á kortum. Nánari útfærsla á umfangi svæðanna er á höndum Umhverfisstofnunar og annarra

aðila er málið varðar þegar unnið er að friðlýsingu. Allar tillögurnar gera ráð fyrir friðlýsingu

samkvæmt 53. gr. laga nr. 44/1999, um náttúruvernd.

Til að tryggja verndun rústamýravistar er eftirfarandi lagt til að:

Stækka friðlandið í Þjórsárverum og styrkja friðlýsingarákvæði

Friðlýsa Orravatnsrústir

Styrkja friðlýsingarákvæði friðlandsins í Guðlaugstungum

Til að tryggja verndun breiskjuhraunavistar er eftirfarandi lagt til:

Svæði í Skaftártungum og á afrétti Síðumanna verði friðuð sem hluti Vatnajökulsþjóðgarðs.

Gerð er grein fyrir þremur mismunandi tillögum þess efnis.

Tillögur um verndun vistgerða á hálendinu.

66