Látraströnd-Náttfaravíkur - Verndartillaga 42
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFNUN ÍSLANDS 2008 Verndun svæða, vistgerða og tegunda. Tillögur Náttúrufræðistofnunar Íslands vegna náttúruverndaráætlunar 2009–2013 Njarðvík – Loðmundarfjörður Hér er lagt til að allur Borgarfjarðarhreppur, alls um 427 km², verði verndaður. Hluti svæðisins hefur verið á náttúruminjaskrá um nokkurt skeið (svæði 606 og 607) vegna stórbrotins og sérstæðs landslags, bergmyndana og fjölskrúðugs og sérstæðs gróðurfars. Svæðið er einnig á náttúruverndaráætlun 2004–2008. Markmið friðlýsingarinnar: Að vernda svæði sem býr yfir sérstæðu og óvenju fjölskrúðugu gróðurfari þar sem fjöldamargar sjaldgæfar plöntutegundir eiga sér búsvæði. Með því að tryggja búsvæðavernd tegundanna er stuðlað að viðhaldi líffræðilegrar fjölbreytni, sbr. 2010 markmið Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni og evrópsku áætlunina um plöntuvernd 2008–2014. Mörk: Svæðið nær frá Brimnesi við Njarðvík, eftir fjallsbrúnum í Súlur, Tindfell, Beinageitarfjall yfir í Jónsfjall, Norðdalshnjúk og Herfell. Þaðan yfir í Skýhnjúk, Grýtu og eftir hæstu brúnum í sjó við Brimnesfjall milli Seyðisfjarðar og Loðmundarfjarðar. Svæðislýsing: Víðlent og fjölbreytt svæði, litríkar bergmyndanir, svo sem rhýólít, sérstæður gróður og grösug dalverpi. Á svæðinu er forn megineldstöð með fjölbreyttum bergtegundum. Borgarfjörður er stuttur og breiður fjörður og inn af fjarðarbotninum gengur grösugur dalur, en innst í honum er mikið berjaland. Í Partafjalli er skógur: birki, víðir og einir. Allt svæðið er með afar fjölbreyttum gróðri, en vesturhlíð Njarðvíkur og Landsendi við Loðmundarfjörð skera sig úr. Óvenju mikið er um sjaldgæfar plöntutegundir. Mikið varpland er í Hafnarhólma. Dyrfjöll eru áberandi kennileiti og einkennandi fyrir svæðið. Hvítserkur er óvenju litauðugt og sérkennilegt fjall þar sem svartir berggangar liggja á víð og dreif um marglitt rhýólít. Stórurð, stórbrotið framhlaup er innan svæðisins. Í Loðmundarfirði eru malarhjallar í hlíðum sem eru merki um hærri stöðu sjávarborðs, og í kirkjugarðinum á Klyppsstöðum er að finna skeljabrot, merkar jarðmyndanir, steinrunna trjáboli og einnig er mikið um steindir og steina, svo sem bikstein, perlustein, baggalúta, jaspis og bergkristalla. Í Loðmundarfirði er sjávarlón með opinn ós til sjávar og miklar leirur. Meðal menningarminja á svæðinu er Borgarfjarðarleið, forn þjóðleið, og eyðibyggðir, svo sem í Loðmundarfirði þar sem Loðmundur hinn gamli nam land. Fjölbreytt landslag hentugt til útivistar og gönguferða. Ógnir: Engar alvarlegar. Nauðsynlegar aðgerðir: Ekkert er því til fyrirstöðu að beit búfénaðar verði áfram í svipaðri mynd og nú er. Koma þarf í veg fyrir að ágengar, framandi plöntutegundir verði fluttar inn á svæðið og forðast ber rask á landinu á þeim stöðum sem eru mikilvægastir fyrir plöntutegundirnar sem hér eru til umfjöllunar. Núverandi landnotkun: Landbúnaður, ferðaþjónusta, fiskveiðar og útivist. Forsendur friðlýsingar: Sérstætt og afar fjölbreytt gróðurfar og óvenju margar sjaldgæfar plöntutegundir gefa svæðinu mikið verndargildi. Allt svæðið er með afar fjölbreyttum gróðri en vesturhlíð Njarðvíkur og Landsendi við Loðmundarfjörð skera sig þó úr. Fjöldi sjaldgæfra tegunda eru á svæðinu en auk þeirra fjögurra háplöntutegunda sem eru á válista eru fjölmargar aðrar sjaldgæfar tegundir á svæðinu eins og gullkollur, Anthyllis vulneraria, þúsundblaðarós, Athyrium distentifolium, skollakambur, Blechnum spicant, lensutungljurt, Botrychium lanceolatum, línstör, Carex brunnecens, grástör, Carex flacca, kollstör, Carex macloviana, keldustör, Carex paupercula, dúnhulstrastör, Carex pilulifera, hagastör, Carex 43
- Page 1: NÍ-08008 Verndun svæða, vistger
- Page 4 and 5: Mynd á kápu: Naðurtunga, Ophiogl
- Page 6 and 7: 4
- Page 8 and 9: 7. viðauki. Jarðfræðisvæði 82
- Page 10 and 11: 1. mynd. Náttúruverndaráætlun 2
- Page 12 and 13: gulþörunga, gullþörunga, brún
- Page 14 and 15: til að vernda smádýr hér á lan
- Page 16 and 17: Við verndun jarðminja á Íslandi
- Page 18 and 19: mosategunda aukist lítilsháttar o
- Page 20 and 21: mannsins. Hingað til hafa engar te
- Page 22 and 23: 9. mynd. Brekkubobbi, Capaea horten
- Page 24 and 25: 12. mynd. Breiskjuhraunavist í Ska
- Page 26 and 27: Að sama skapi leggur Náttúrufræ
- Page 28 and 29: 5 HEIMILDIR Badman, T. og Bomhard,
- Page 30 and 31: 28
- Page 32 and 33: 1. viðauki. Háplöntur sem þarfn
- Page 34 and 35: 2. viðauki. Mosar sem þarfnast ve
- Page 36 and 37: 3. viðauki. Fléttur sem þarfnast
- Page 38 and 39: 4. viðauki. Plöntusvæði Náttú
- Page 40 and 41: Snæfjallaströnd - Verndartillaga
- Page 42 and 43: Ingólfsfjörður-Reykjafjörður -
- Page 46 and 47: pulicaris, fjallavorblóm, Draba ox
- Page 48 and 49: Gerpissvæðið Svæðið sem hér
- Page 50 and 51: Eyjólfsstaðaskógur Svæðið sem
- Page 52 and 53: Egilsstaðaskógur, nærliggjandi s
- Page 54 and 55: Egilsstaðaskógur, nærliggjandi s
- Page 56 and 57: Austurskógar - Verndartillaga 54
- Page 58 and 59: Við Hoffellsjökul - Verndartillag
- Page 60 and 61: Steinadalur - Verndartillaga 58
- Page 62 and 63: Tjarnir á Innri-Hálsum ofan við
- Page 64 and 65: Undirhlíðar í Nesjum í Hornafir
- Page 66 and 67: Hvannstóð undir Reynisfjalli í M
- Page 68 and 69: 6. viðauki. Vistgerðir á hálend
- Page 70 and 71: exannulata. Sjaldgæfar plöntutegu
- Page 72 and 73: Þjórsárver - Verndartillaga 70
- Page 74 and 75: Orravatnsrústir - Verndartillaga 7
- Page 76 and 77: Breiskjuhraunavist Lagt er til að
- Page 78 and 79: Skaftáreldahraun (verndartillaga 1
- Page 80 and 81: Skaftáreldahraun (verndartillaga 2
- Page 82 and 83: Skaftáreldahraun (verndartillaga 3
- Page 84 and 85: 7. viðauki. Jarðfræðisvæði N
- Page 86 and 87: Tungnaá á breiðum aurum og austa