Ársskýrsla Landsbankans - Landsbankinn
Ársskýrsla Landsbankans - Landsbankinn
Ársskýrsla Landsbankans - Landsbankinn
Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
Ávarp formanns

Bankaráðs og bankastjóra

Stoðirnar treystar

Í lok árs 2008 dundi áfall yfir

íslensku þjóðina sem markar

upphaf dýpsta samdráttarskeiðs

í íslensku efnahagslífi

í áratugi. Hlutfall fjárfestinga

er í sögulegu lágmarki,

atvinnuleysi er hátt og áhrif

samdráttarins á efnahag

heimila og fyrirtækja eru

á margan hátt mun djúpstæðari

en á fyrri samdráttarskeiðum,

m.a. vegna

hárrar skuldsetningar.

Hvar sem borið er niður eru

stór verkefni framundan í

íslensku efnahagslífi. Að

auki bætist við óvissa er

tengist yfirstandandi dómsmálum

í fjármálakerfinu

og skipan mikilvægra mála

til framtíðar, t.d. fiskveiðistjórnunarkerfisins

og

orkuöflunar og -nýtingar.

Þrátt fyrir þetta allt eru þó

vísbendingar um að það

versta sé að baki og flestir

eru sammála um að langtímahorfur

í efnahagsmálum

séu góðar. Margt

bendir til þess að hagvöxtur

sé tekinn að glæðast á ný.

Þó verður að hafa í huga að

skuldsetning margra viðskiptalanda

Íslendinga er

mikil og staða sumra þeirra

alvarleg. Þetta hefur áhrif á

vöxt og viðgang hér á landi.

Ekki er einsýnt á þessari

stundu hvernig unnið verður

úr þeim málum.

Ár uppbyggingar

og umbóta

Landsbankinn hefur unnið

markvisst allt árið 2010 að

því að treysta stoðir sínar

til að mæta þeim áskorunum

sem við blasa í erfiðu

umhverfi. Það starf hefur

verið leitt af nýju Bankaráði

sem tók við á árinu, svo og

nýjum bankastjóra. Þá var

skipulagi bankans breytt

og mikil endurnýjun varð í

framkvæmdastjórn, hvorutveggja

til að tryggja sem

best framgang nýrrar stefnu

og nýrrar hugsunar.

Fyrir Landsbankann hefur

það verið ærið verkefni að

takast á við afleiðingar

hrunsins og byggja upp

innviði og traust að nýju,

innanlands og utan. Þá

hafa reglur og eftirlit með

fjármálafyrirtækjum tekið

töluverðum breytingum með

það að markmiði að tryggja

hagfellda starfsemi til

framtíðar.

Landsbankinn er stærsta

fjármálafyrirtæki landsins

með vel yfir 100.000 viðskiptavini,

eða um þriðjungs

markaðshlutdeild og sterka

stöðu í öllum greinum

atvinnulífsins. Ábyrgð

bankans er því mikil og þær

kröfur sem gerðar eru til

hans eru einnig miklar.

Eignarhald Landsbankans

er skýrt og það er kostur.

Ríkissjóður er eigandi að

Landsbankinn 2010 Ávarp formanns Bankaráðs og bankastjóra 5