Ársskýrsla Landsbankans - Landsbankinn
Ársskýrsla Landsbankans - Landsbankinn
Ársskýrsla Landsbankans - Landsbankinn
You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Gjaldeyrisáhætta

Bankinn starfar í samræmi

við reglur Seðlabankans nr.

950/2010 um gjaldeyrisjöfnuð.

Reglurnar kveða á um að

gjaldeyrisjöfnuður stofnana

(hvort sem er til skamms eða

langs tíma) skuli ávallt vera

innan ákveðinna marka í

hverri mynt.

Við mat á gjaldeyrisáhættu

bankans hefur hann tekið

tillit til þess að hluti viðskiptavina

hans er með

stóran hluta eða allar tekjur

sínar í erlendri mynt á

meðan aðrir viðskiptavinir

hafa litlar eða engar tekjur í

erlendri mynt. Einnig horfir

bankinn á tryggingastöðu

sína gagnvart viðskiptavinum.

Bankinn metur

gjaldeyrisstuðul sem er

reiknaður út frá meðalteygni

lána í erlendri mynt gagnvart

gengisbreytingum.

Bankinn færir áhrif gengisbreytinga

erlendra lána sem

breytingu á virði lána. Sá

Þróun gjaldeyrisáhættu

250.000

200.000

150.000

100.000

50.000

31.12.2008

hluti gengisbreytinga sem

veldur breytingu á virði láns

veltur á því hvernig geta

lántaka til að endurgreiða

lánið breytist vegna viðkomandi

gengisbreytingar.

Af því leiðir að gengisfall

krónunnar hefur meiri áhrif

á viðskiptamenn með litlar

eða engar erlendar tekjur en

þá sem hafa hluta eða allar

sínar tekjur í erlendri mynt.

Þetta gildir svo einnig í hina

áttina, þ.e. við styrkingu

krónunnar.

Á árinu 2011 voru áhrif

gengismunar gjaldeyris jákvæð

um 14 milljarða króna.

Áhrifin eru að langmestu

leyti til komin vegna misvægis

í myntsamsetningu

eigna og skulda bankans.

Eignir bankans í erlendum

myntum eru að stórum hluta

í CHF og JPY en skuldir

bankans í erlendum myntum

eru að langstærstum

hluta í EUR, GBP og USD.

Við ákvörðun á myntsamsetningu

skuldabréfsins til

gamla Landsbankans var

31.12.2009

horft til tekjumynta viðskiptavina

bankans. Margir

af viðskiptavinum bankans

eru skuldsettir í CHF og

JPY en með tekjur í öðrum

myntum. Stefna bankans

er að viðskiptavinir með

erlend lán hafi tekjur í sömu

myntum og höfuðstóll sömu

lána. Þegar þessir viðskiptavinir

fara í gegnum endurskipulagningu

eða óska eftir

endurfjármögnun er misvægið

leiðrétt og lán veitt í

tekjumyntum viðskiptavina.

Bankinn hefur jafnframt

gert gjaldeyrisvarnarsamninga

við erlenda banka til

að lágmarka áhættu meðan

endurskipulagningarferlið

stendur yfir.

Óvissa um túlkun gengisbundinna

lána getur haft

áhrif á gjaldeyrisáhættu

bankans. Í kjölfar úrskurðar

Héraðsdóms Reykjavíkur

þann 23. febrúar 2011 er

óvissa um stöðu þeirra

erlendu lána sem greidd

voru út í íslenskum krónum.

Í uppgjöri bankans fyrir

árið 2010 var litið svo á að

umrædd lán væru í raun

lán í íslenskum krónum

og niðurfærsla gerð vegna

þessara lána. Að því gefnu

að dómur héraðsdóms verði

staðfestur í Hæstarétti hefur

það engin áhrif á gjaldeyrisjöfnuð

bankans. Ef Hæstiréttur

staðfestir hins vegar

að lánin séu gengisbundin

hækka gjaldeyriseignir um

124,7 milljarða króna og

heildarstaða verður 93,7

milljarðar króna miðað við

árslok 2010. Gjaldeyrisjöfnuður

að teknu tilliti til

gjaldeyrisstuðuls (FX-delta)

verður þá 23,6 milljarðar

króna. Varðandi frekar upplýsingar

um áhrif fyrrnefnds

dóms er vísað til skýringar

nr. 4 (i) og 78 í ársuppgjöri

bankans.

Í árslok 2010 var gjaldeyrisáhætta

um 8,5% af áhættugrunni,

en var 13,7% í lok

árs 2009.

31.03.2010 30.06.2010 30.09.2010 31.12.2010

80 Áhættustýring Landsbankinn 2010