Ársskýrsla Landsbankans - Landsbankinn
Ársskýrsla Landsbankans - Landsbankinn
Ársskýrsla Landsbankans - Landsbankinn
Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
Stjórnarhættir

Það er markmið Landsbankans að efla góða stjórnarhætti

bankans í þágu heildarhagsmuna bankans sjálfs, hluthafa,

viðskiptavina og samfélagsins alls. Góðir stjórnarhættir stuðla

að traustum samskiptum hluthafa, bankaráðsmanna, stjórnenda,

starfsmanna og annarra hagsmunaaðila, og eru leiðarljós

í því að styrkja hlutlægni, heilindi og ábyrgð í stjórnun bankans.

Landsbankinn endurskoðar með reglubundnum hætti hvort

viðeigandi og viðteknum leiðbeiningum um stjórnarhætti sé

fylgt og hvort stjórnarhættir bankans á hverjum tíma séu

í samræmi við þær leiðbeiningar.

Landsbankinn stefnir

að því að stjórnarhættir

bankans séu á hverjum tíma

í samræmi við bestu framkvæmd

að því er varðar

leiðbeiningar um stjórnarhætti

fjármálafyrirtækja og

í samræmi við lög á hverjum

tíma, sbr. 3. mgr. 19. gr. laga

nr. 161/2002 um fjármálafyr-

irtæki, sbr. lög nr. 75/2010.

Í þeim efnum eru lagðar til

grundvallar Leiðbeiningar

um stjórnarhætti fyrirtækja

sem gefnar voru út í júní

2009 af Viðskiptaráði Íslands,

Nasdaq OMX Iceland

hf. og Samtökum atvinnulífsins

(3. útg.). Jafnframt

telur bankinn rétt að taka

tillit til viðmiðanna sem

Basel-nefndin um bankaeftirlit

gaf út í október 2010 um

bætta stjórnarhætti banka

(e. Principles for enhancing

corporate governance).

Þá tekur bankinn tillit til

eigendastefnu ríkisins um

fjármálafyrirtæki sem fjár-

málaráðuneytið gaf út 1.

september 2009, samþykkta

bankans og starfsreglna fyrir

Bankaráð. Með vísan til alls

þessa birti Landsbankinn á

vefsíðu sinni þann 15. apríl

2011 skjal um stjórnarhætti

Landsbankans þar sem finna

má yfirlit um þau viðmið

sem Landsbankinn fylgir.

Landsbankinn 2010 Stjórnarhættir 67