Ársskýrsla Landsbankans - Landsbankinn
Ársskýrsla Landsbankans - Landsbankinn
Ársskýrsla Landsbankans - Landsbankinn
Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
Framkvæmdastjórn

Hlutverk framkvæmdastjórnar er að stýra daglegum rekstri

Landsbankans í umboði eigenda og í samræmi við stefnu

Bankaráðs. Framkvæmdastjórn leggur áherslu á skilvirka

stjórnun og markvissa innleiðingu á stefnu bankans.

Steinþór Pálsson, bankastjóri

Steinþór Pálsson hefur langa

reynslu af stjórnunarstörfum

við banka og framleiðslufyrirtæki

bæði innanlands

og erlendis og mikla reynslu

af breytingastjórnun og

stefnumótun.

Steinþór er viðskiptafræðingur

frá Háskóla Íslands

og með MBA gráðu frá

Edinborgarháskóla. Á árum

áður gegndi hann stöðu

framkvæmdastjóra lánasviðs

Verzlunarbanka Íslands

og varð síðar starfsmaður

Íslandsbanka, m.a. sem

forstöðumaður lánadeildar,

fjárfestingarlána útibúaþjónustu,

áhættustýringar

og fyrirtækjaþjónustu, auk

þess sem hann var virkur í

stefnumótunarstarfi Íslandsbanka

og samrunaferli

forvera hans. Hann var um

hríð fjármála- og rekstrarstjóri

líftæknifyrirtækisins

Urður, Verðandi og Skuld,

en síðustu átta árin starfaði

hann hjá Actavis. Fyrst sem

framkvæmdastjóri Actavis á

Möltu, þá sem framkvæmda-

stjóri Actavis í Bandaríkjunum

og á árunum 2008 –

2010 sem framkvæmdastjóri

Actavis samstæðunnar á Íslandi

á sviði stefnumótunar.

Steinþór er stjórnarformaður

Horns hf., Hamla ehf. og

situr í stjórn Samtaka fjármálafyrirtækja.

Steinþór er formaður framkvæmdastjórnar,

Áhættu- og

fjármálanefndar og Lánanefndar.

64 Stjórn og stjórnendur bankans Landsbankinn 2010