Ársskýrsla Landsbankans - Landsbankinn
Ársskýrsla Landsbankans - Landsbankinn
Ársskýrsla Landsbankans - Landsbankinn
You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Stjórnendaþjálfun

Stjórnendaþjálfun er sem

stendur eitt af lykilverkefnum

Landsbankans. Sú

stefna hefur verið mótuð að

styðja betur við stjórnendur,

bæði með þjálfun og skýrari

upplýsingagjöf til langs

og skamms tíma. Þetta er

eitt þeirra atriða sem hvað

mestu skipta um framgang

bankans og farsælan rekstur

til framtíðar. Í mótun er

frammistöðumatskerfi sem

mun skerpa á kröfum um

árangur og forgangsröðun,

auk þess að tryggja sameiginlega

sýn stjórnenda og

starfsfólks á helstu verkefni

hverrar starfseiningar.

Vottun fjármálaráðgjafa

Víðsvegar um lönd hafa

verið teknar upp aðferðir til

að votta kunnáttu og færni

þeirra sem starfa við að

veita almenningi ráðgjöf

í fjármálum. Fjármálafyrirtækin

á Íslandi hafa

tekið höndum saman

á vettvangi Samtaka

fjármálafyrirtækja, SFF, og

vinna nú að sameiginlegri

fræðsludagskrá í þessum

tilgangi.

Þau námskeið sem þar verða

í boði eru sérstaklega ætluð

framlínustarfsfólki og er þar

meðal annars horft til þess

að starfsmenn Landsbankans

muni standast vottun

fjármálaráðgjafa þegar sú

vottun verður tekin upp

hérlendis.

Hlustum, lærum, þjónum

Einkunnarorð nýrrar

stefnu eru hlustum, lærum

og þjónum. Með þeim er

staðfestur sá skilningur að

Landsbankinn er þjónustufyrirtæki

og að meginmarkmiðið

með starfseminni er

að þjónusta viðskiptavini.

50 Mannauður Landsbankinn 2010